þriðjudagur, ágúst 16, 2005

TANNSÖFNUN OG AUKAVINNA

Söfnunin tönn upp í Kidda er í fullum gangi og ef þú hefur áhuga á því að vera með, hafðu þá samband við okkur í síma 511 0957, alla virka morgna frá 7 - 10
Það er tannsmiðurinn Auður Árnadóttir sem kemur til með að smíða tönnina sem fer í Kidda, en við fáum svo tannlækni í að gera aðgerðina.
Svona aðgerð kostar á annað hundrað þúsund, svo nú verða allir að leggjast á eitt.
Vertu með, og leggðu okkur lið. Við þurfum aðeins 400 manns til að leggja inn 500 krónur hver. Nánari upplýsingar varðandi bankareikning og annað verða svo settar hér klukkan 10 í dag þriðjudag.

Kv.
Þátturinn Sokkar á FM957
- þú átt okkur skilið



Þetta er nottla snilld...grey kappinn er eilítið "gómsætur" enda týndi hann tönninni sykursnúði í :)


Úff ég er að fara yfirum af stressi, vinnan á 350 og svo hef ég tekið af mér aukastarf sem upplýsingafulltrúi og íslenskukennari á vegum bandaríska hersins hérlendis. Allt á fullu vegna þessa hrottalega morðs sem var framið á sunnudaginn...er að þýða allar greinar og fréttir sem eru birtar vegna þessa. Held samt að fréttamaður RÚV hafi slegið öll Sherlock Holmes metin í gær þegar hún sagði að talið er að stúlkan hafi verið myrt...hmmm...kemur eitthvað annað til greina þegar maður lætur lífið vegna ótal stungusára á hnakka og aftan á höfði!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home