fimmtudagur, september 29, 2005

KLUKK...

Já ég verð víst að svara þessu blessaða klukki sem ég fékk á mig. Á að telja fimm useless facts um sjálfan mig...hmmm:

1. Ég á gríðarlega erfitt með svona tunnuhurðir. Fæ alltaf sömu tilfinningu og þegar maður var í snúsnú back in the old days.. einn tveir og...svo á ég það til að hlaupa í gegn.
Það er ein helvítis tunnuhurð sem ég hata...hún er niðri í Landflutningum þar sem ég næ í skyrið í hverri viku. Hún er af minnstu gerð og ég get ekkert flýtt mér í gegnum hana líkt og þessar stærri...arggh!
Skil samt ekki alveg hvað er það sem ég hræðist... ég meina það er ekki eins og ég detti framfyrir mig ef glerið að aftan fari í skottið á mér... eða hvað...hryn ég þá fram fyrir mig og festi hurðina? Gvöð það væri hrikalegt!

2. Ég er með krónískar ísmolatáslur og Arnar villiggi hlýja þeim ;)

3. Ég klára aldrei aldrei mjólkina sem er eftir í cheeriosskálinni, Biddí frænka reyndi að siða mig til þegar ég var fimm ára...It didn´t do much!

4. Pabbi minn býr í New Zealand sem er akkúrat hinu meginn á hnettinum. Þar er sumar núna...mmmm...suuuumar!

5. Ég er sjúklega hrædd við hálku...hahahaha Sandra mín, gat ekki sleppt þessu!
Jafnvel þegar við stelpurnar vorum átta vetra á leið í leikfimi uppi í Digranesi þá var ég alltaf ein eftir að reyna að koma mér yfir helvítis ísilagt bílaplanið..."Stelpur, bíðið..." svo var ég eins og nírætt gamalmenni í diskókennslu!

Nú er klukkið búið á TinTin...nó mor klukk!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home