þriðjudagur, desember 20, 2005

JUST MY LUCK...

Ég er búin að vera að leita af kjól fyrir nýársteitið í tæpar átta vikur samfleytt. Fann svo kjól sem toppaði alla hina og velti þessu vel og vandlega fyrir mér. Fór aftur og aftur í búðina og mátaði þessa yndisfögru flík. Afgreiðslukonan var heldur kindarleg þegar ég spurði hvort að mörg eintök af bjútíinu hefðu lent hérlendis, hún neitaði því alfarið og var sammála mér að ég yrði að splæsa í herlegheitin. Endaði svo með því að fyrir tæpri viku þá eyddi ég fúlgu í kjólinn með alltof stórt bros á vörunum. Þvílík gleði og hamingja sem ein flík færði mér. Fannst ég hálf sjalló að geta glaðst svona gríðarlega yfir þessu.
Kom svo heim og hengdi hann upp og fór svo öðru hvoru bara að athuga hvernig nýjustu flíkinni minni leið. Jú jú...ennþá algjörlega himneskur og ég farin að hlakka gríðarlega til þess að geta spókað mig í þessu eindæma posh partý á nýárs.
Lúri svo uppi í sófa í gærkveldi með kertaljós og ískaldan öl þegar við mér blasir auglýsing af jólaþætti Það var lagið... Blasir þá við mér annað eintak af nýjustu ástinni í mínu lífi, glitrandi fagur og geislandi á miðju sviðinu ásamt hræðilegu pari af beislituðum Pocahontas stígvélum sem innihéldu enga aðra en BIRGITTU HAUKDAL!
úff...ég er ennþá pirrpirr

1 Comments:

Blogger Bryndis said...

Hahaha! Þú ert með sama smekk og Birgitta!! :p

3:51 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home