fimmtudagur, janúar 19, 2006

HEIL OG SÆL!

Var góðfúslega minnt á það í morgun af stelpunum að bóndadagurinn er á morgun. Guðlín ætlar að slá í gegn hjá sínum og vekja hann með eggjum og beikoni. Anna Ýr ætlar að koma Hjalta sínum á óvart með trylltu kynlífi en púkinn TinTin ... hún ætlar að hrekkja kappann sinn. Hann er alltaf í diet svo að ég get nú ekki eldað breskan morgunverð með öllu, kynlífið er nottla ALWAYS tryllt ;) heheh svo að ... dadddadddam

Ég ætla að láta kalla hann upp í Laugum: Arnar Arnar, konan þín er í símanum. Hún spyr hvort þú hafir tekið hárþurrkuna!

HAHAHHAHAHAH held ég slái aaaalveg í gegn með þessu uppátæki. Verst er að Arnar er þekktur fyrir að svara svona uppátækjum með hrikalegri hörku.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home