föstudagur, júní 16, 2006

Kaloríuklúbburinn!

Hittumst skvísurnar í Saumó hjá Ásu Siggu á miðvikudaginn og það var ótrúlega gaman. Fyndið samt að kalla þetta saumó þar sem að engin okkar gerði neitt tengt handavinnu, átum hinsvegar á okkur gat enda kræsingar á boðstólnum. Okkur var meinaður aðgangur ef við neituðum að innbyrgða kaloríuríka fæðu eða óskuðum eftir vatnsglasi, þess vegna kallast hópurinn hér með kaloríuklúbburinn!

Næsti hittingur verður svo sjöunda júlí og þá verður startað niðri í spa-inu í Laugum með hvítvíni og notalegheitum :) mmm ... hlakka til! Spurning hvort maður fer ekki nett í kaloríurnar þangað til enda krefst ferðin baðfata ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home