föstudagur, júlí 21, 2006

SUMARIÐ ER TÍMINN...

þegar TinTin veikist af barkabólgu!
Frábært myndi einhver segja og halda að ég lægi bara í sólbaði úti í garði. Ónei...ekki aldeilis! Ég ligg klístruð við leðursófann inni í stofu eftir fimmta hitakastið í dag. Með tárin í augunum lít ég út um gluggann og sé heiðan himinn...GREAT!

Barkabólgan er bráðsmitandi svo að ég má ekki vera meðal almennings. Þrekið er í mínus og ég sef eeeeendalaust. Arnar að vinna eins og geðsjúklingur svo að ég er ein heima frá sex á morgnanna til tíu á kvöldin ...búhúhú hvað ég á bágt :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home